BergerBond parketlím og grunnar
Berger-Seidle vörurnar eru þrautreyndar hér á landi. Þær hafa verið notaðar af íslenskum iðnaðarmönnum í næstum tvo áratugi með afburða góðum árangri.
Berger Seidle er í fararbroddi hvað varðar vöruþróun og vöruúrval. Sífellt er bætt við nýjungum í öllum vörulínum.
Það nýjasta er ný lína af mjög áhugaverðum nýjum parketolíum bæði glærum og lituðum.
Ekki má gleyma gömlu góðu þynnislökkunum sem nú hafa verið aðlöguð nýjum reglum ESB um hámark leysiefna.
Einnig má nefna nýjungar í vatnslökkum, þau eru alltaf í þróun og uppfylla nú ýtrustu kröfur ESB um hollustu og umhverfisvernd.
Með því að nota Berger-Seidle ert þú alltaf í fremstu röð.
BergerBond – K1 Gamla góða “sprittlímið” Ódýrt sterkt og gott. Áratuga reynsla er á þessari gerð parketlíma. Hentar vel undir stafaparket, flísaparket, endatrésparket, samlímt parket, og plankaparket með krossviðarbotni.
BergerBond -P2 Tveggja þátta poly-ureþan lím. Frábær viðloðun við flest undirgólf, afburða sterkt. Hentar til límingar á nær öllum viðargólfum. Prófað með ECO 10 parketplönkum.
Pakn. 10 kg. (8,8kg + 1,2kg)
Pakn 6 kg. (5,3kg + 0,7kg.)
BergerBond -D1 og D1U BergerBond D1 er einþátta leysiefnasnautt parketlím framleitt úr hágæða hráefnum. Ætlað til að líma gegnheilt stafaparket 10 – 22 mm, mosaikparket, hákantparket, endatrésparket ásamt tveggja laga samlímduparketi. Lágt vatnsinnihald. D1S þolir allt að 15° C frost
BergerPrimer P er einþátta poly-ureþan grunnur. Leysiefnalaus! Notaður sem festigrunnur á gljúpa eða þétta gólfleti á gólfhita og sem rakavarnargrunnur. Sérstaklega ætlaður undir BergerBond P1, BergerBond P2 og BergerBond M1 parketlím.
BergerBond Primer E er tvíþátta epoxy grunnur. Leysiefnalaus. Rýrnar ekki. Notaður sem raravarnargrunnur á gljúpa eða þétta gólfleti á gólfhita. Sérstaklega ætlaður undir BergerBond P1, BergerBond P2 og BergerBond M1 parketlím.